Hugrún
HUGRÚN (92fm) Skemmilega hannað sumarhús/einbýlishús sem er álklætt og er tilvalið sem sumarhús einnig hægt að nota sem heilsárshús. Húsið er byggt úr léttmálmi sem gerir það vistvænt, viðhaldslétt og gefur allt að 90% orkunýtingu. Allt gler í húsinu er þrefalt frá vönduðum framleiðanda.
Í húsinu eru tvö – þrú svefnherbergi, tvö baðherbergi, stofa, borðstofa – þriðja herbergið er hugsað sem tómstundarými en hægt að nota sem svefnherbergi eða gestaherbergi. Tvöföld svalahurð út á verönd úr stofu sem er góð framlenging á stofunni.
Útgengi út á verönd úr hjónaherbergi.
Húsið hentar bæði sem sumarhús og heilsárshús. Passar séstaklega fyrir þá sem vilja búa í sérbýli og vilja ekki búa í of stóru húsi. Verðið hæfir öllum og tækifæri að eignast sérbýli á frábæru verði. Húsin skilast fullbúin án innréttinga á baði, þvottaúsi og eldhúsi og miðast verðið við það.
Húsið skilast fullbúið. Einnig hægt að fá tilboð í PRODECK verandir sem eru einnig úr viðhaldsléttu efni.
Verð
Herbergjafjöldi
Orkunýtni
|
Energy class A+
A+
| A | B | C | D | E | F | G | H |